Lilly Nails Naglaskóli
Lilly Nails á Íslandi var stofnað árið 2017, merkið er sænskt en er naglaskólinn í fjölmörgum löndum og útskrifast því naglafræðingar frá Lilly Nails með alþjóðadiplomu.
Við leggjum áheyrslu á persónulegt nám og er því kennt í litlum hópum. Mikilvægt er til að ná góðum árangri í náminu að nemendur séu duglegir að gera neglur heima við líka mælt er með amk 2-3 settum í viku.
Lilly Nails kennir í þrepa kerfi og telst level 1&2 sem grunnnám og útskrifast nemendur sem naglafræðingar að þessum tveimur þrepum loknum + próf.
Námsgögn eru innifalin í verði.
Þar sem Lilly Nails leggur mikið uppúr einstaklingsmiðuðu námi er hægt að sníða naglanámið alveg að þörfum nemanda með auka tímum og fleirri námsgögnum. Hægt er að taka allt að 13 skipti með kennara.
Öll námskeið eru auglýst hér á síðunni og á instagram síðu okkar @lillynailsiceland
Level 1
Manicure - Í þessu námskeiði er aðeins kennt BIAB.
Level 2
Grunnám í geli- Á þessi námskeiði læra nemendur 3 shape (Square,Coffin,Almond)
Level 3
Advanced Nail tech- Hér læra nemendur fleirri aðferðir ( skraut, form og reverse french )
Level 4
Shape Pro - Fullkomna shapeið
Level 5
Fade - Babyboomer/french fade - Glimmer Fade - Litað Fade
A.T.H.
Endilega hafðu samband í skilaboðum eða á info@lillynails.is fyrir frekari upplýsingar um næstu námskeið og hvernig námsleið hentar þínum þörfum.
Lilly Nails naglaskólinn er samþykktur af stéttarfélögum og því eiga tilvonandi nemendur rétt á endurgreiðslu vegna námskeiðisgjalds, upphæðin er mismunandi eftir félögum og því að athuga sinn rétt. Við hjálpum með glöðu geði svo endilega hafa samband ef þér vantar aðstoð.
Hægt er að skipta greiðslum með raðgreiðslum frá Teya og Netgíró.
Einnig bjóðum við upp á önnur uppfærslunámskeið fyrir útskrifaða naglafræðinga heldur en eru í levelunum t.d.
Dual Forms - Kennt af Guðrúnu Jónu
E-File manicure - Kennt af Guðrúnu Jónu
Skraut námskeið - Kennt af Kristínu Ragnars
